Matthías Tryggvi til Þjóðleikhússins

Matthías Tryggvi Haraldsson hefur verið ráðinn til Þjóðleikhússins.
Matthías Tryggvi Haraldsson hefur verið ráðinn til Þjóðleikhússins. Ljósmynd/Þjóðleikhúsið

Matthías Tryggvi Haraldsson, leikskáld og sviðshöfundur, hefur verið ráðinn í starf listræns ráðunautar Þjóðleikhússins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu.

Matthías hefur víðtæka reynslu úr íslensku leikhús- og menningarlífi en er þekktastur fyrir leikverk sín og þátttöku í hljómsveitinni Hatara. Matthías Tryggvi gengur þar með til liðs við teymi listrænna stjórnenda Þjóðleikhússins.

„Fiðrildin í maganum eru strax farin að flögra. Það er með kærleik í hjarta sem ég stíg í þetta hlutverk og get varla ímyndað mér betri vettvang til að nýta krafta mína. Listin er einstakt starfssvið að því leyti að við þurfum í senn fagmennsku og skýra ramma en ekkert síður óendanlegt pláss til að vera púkar. Með hvort tveggja í huga er ég til þjónustu reiðubúinn!“ er haft eftir Matthíasi Tryggva í tilkynningu.

Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir, sem gegnt hefur starfinu um tæpra fjögurra ára skeið, mun snúa sér að ritstörfum og skrifa nýtt leikrit fyrir leikhúsið eftir að hún lætur af störfum 1. nóvember, þegar Matthías Tryggvi tekur við keflinu.

Matthías Tryggvi er reynslumikið leikskáld og höfundur en hefur einnig reynslu sem leikstjóri og dramatúrg.

Verk hans hafa verið flutt í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, hjá sjálfstæðum leikhúsum og erlendis. Hann var samningsbundið leikskáld Leikfélags Reykjavíkur.

Matthías Tryggvi hefur einnig mikla reynslu á öðrum sviðum menningar og samfélagsmála og var m.a. um árabil í hljómsveitinni Hatara sem vakti athygli víða um heim fyrir tónlist sína, gjörninga og beitta ádeilu.

Hann hefur reynslu af dagskrárgerð fyrir útvarp og sjónvarp auk mikillar reynslu af texta- og hugmyndasmíði, m.a. hjá auglýsingastofunni Brandenburg. Matthías Tryggvi hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir verk sín, m.a. Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin fyrir leikrit sitt Síðustu dagar Sæunnar, auk annarra tilnefninga. Hann fékk einnig íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins með hljómsveit sinni Hatara. Matthías Tryggvi er útskrifaður sviðshöfundur frá LHÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Maður lærir vissulega að vera sjálfum sér nógur með því að útiloka aðra, en það er ekki besta leiðin. Hvettu aðra til að leggja sitt að mörkum til mannúðarmála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Maður lærir vissulega að vera sjálfum sér nógur með því að útiloka aðra, en það er ekki besta leiðin. Hvettu aðra til að leggja sitt að mörkum til mannúðarmála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
5
Birgitta H. Halldórsdóttir