Með sérkennilega fylgihluti í nýju myndskeiði

Britney Spears er dugleg að birta myndir og myndskeið af …
Britney Spears er dugleg að birta myndir og myndskeið af sér á Instagram. Skjáskot/Instagram

Poppstjarnan Britney Spears hefur verið iðin við að deila afar einkennilegum myndskeiðum af sér á samfélagsmiðlum. Í gærdag birti hún tvö myndskeið sem hafa vakið mikla athygli, en í öðru þeirra dansar hún með sérkennilega fylgihluti.

Í myndskeiðunum er Spears fáklædd, í stuttum toppi og bikiníbuxum, og sést hreyfa sig í takt við framandi tónlist með tvo stóra eldhúshnífa í hvorri hendi.

„Ég byrjaði að leika mér með hnífa í eldhúsinu í dag. Engar áhyggjur, þetta eru gervihnífar. Hrekkjavaka er handan við hornið,” skrifaði Spears við færsluna, en margir segja hnífana ekta þar sem söngkonan sést með umbúðir á framhandlegg í næsta myndskeiði sem hún birti.

Í ágúst sótti eiginmaður Spears, Sam Asghari, um skilnað eftir rúmlega eins árs hjónaband og sakaði poppstjörnuna um að hafa haldið við einn af starfsmönnum sínum.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Málefni tengd sköttum, reikningum og skuldum hafa íþyngt þér að undanförnu. Það rofar til seinna í næstu viku. Makinn kemur þér á óvart.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
5
Ragnar Jónasson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Málefni tengd sköttum, reikningum og skuldum hafa íþyngt þér að undanförnu. Það rofar til seinna í næstu viku. Makinn kemur þér á óvart.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
5
Ragnar Jónasson