Skilja eftir 25 ára hjónaband

Leikarinn Hugh Bonneville hefur sótt um skilnað við eiginkonu sína …
Leikarinn Hugh Bonneville hefur sótt um skilnað við eiginkonu sína til 25 ára. Ljósmynd/Imdb.com

Downtown Abbey-stjarnan Hugh Bonville hefur sótt um skilnað við Lucindu Williams eftir 25 ára hjónaband. 

Þetta staðfesti talsmaður leikarans við breska blaðið Sun, en heimildir blaðsins herma að Bonneville hafi tekið ákvörðun um skilnaðinn og að Williams fyndist eins og að 25 ára hjónaband þeirra hafi enga þýðingu fyrir leikarann sem hefur verið upptekinn í öðrum þáttum lífs síns. 

„Hugh hefur verið mikið að heiman við tökur á þessu ári. Hann hefur grennst aðeins í sumar, hann leit út fyrir að vera snyrtilegur, sólbrúnn og afslappaður,“ sögðu heimildarmenn við blaðið. 

Mætti einn í brúðkaup án giftingahringsins

Orðrómur um skilnaðinn fór fyrst af stað þegar Bonneville mætti í brúðkaup meðleikara síns Michelle Dockery í síðustu viku án Williams og án giftingahringsins. 

Bonneville og Williams kynntust fyrst þegar þau voru unglingar en byrjuðu ekki að stinga saman nefjum fyrr en móðir hans kynnti þau aftur þegar þau voru á þrítugsaldri. Þau gengu í hjónaband í nóvember 1998 og eiga einn son saman, Felix, sem er 20 ára.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið særður - það er gott að viðurkenna það. Nú þarftu að fá að sleikja sárin. Engum stendur ógn af metnaði þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
3
Lucinda Riley og Harry Whittaker
4
Elly Griffiths
5
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið særður - það er gott að viðurkenna það. Nú þarftu að fá að sleikja sárin. Engum stendur ógn af metnaði þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
3
Lucinda Riley og Harry Whittaker
4
Elly Griffiths
5
Moa Herngren