Ætlaði að nema á brott og myrða sjónvarpsstjörnu

Holly Willoughby er þekkt sjónvarpsstjarna í Bretlandi.
Holly Willoughby er þekkt sjónvarpsstjarna í Bretlandi. Skjáskot/Instagram

Maður var handtekinn fyrir ásetning um mannrán og morð. Hann er sagður útfært nákvæma áætlun um hvernig mætti nema á brott bresku sjónvarpsstjörnuna Holly Willoughby. 

Í frétt BBC segir að maðurinn sem um ræðir heitir Gavin Plumb og er 36 ára öryggisvörður í verslunarkjarna.

Willoughby hefur ekki getað mætt til starfa í morgunsjónvarpsþættinum This Morning á ITV eins og hún er vön og hefur verið undir öryggisgæslu lögreglunnar á heimili sínu sem hún deilir með eiginmanni og þremur börnum.

Samkvæmt The Sun þá eru engin tengsl á milli Plumb og Willoughby. 

Lögreglan fann ýmis óhugnaleg skilaboð sem innihéldu hótanir um mannrán og alvarlegar árásir á hendur Willoughby. 

„Þetta var mjög hröð rannsókn og lögreglan vann dag og nótt við að afla gagna til þess að handtaka manninn,“ segir í yfirlýsingu lögreglu.

„Öryggi fólks skiptir mestu máli og við munum halda áfram að setja mál sem þessi í forgang.“

Honum er lýst sem einfara sem fer sjaldan út úr húsi. Þá hefur hann einnig glímt við þunglyndi og ofþyngd og tók meðal annars þátt í raunveruleikaþætti fyrir nokkrum árum sem gekk út á það að léttast.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir