Með ólæknandi krabbamein og deilir „lífslista" á TikTok

Clare Sacco er staðráðin í að skapa ógleymanlegar minningar.
Clare Sacco er staðráðin í að skapa ógleymanlegar minningar. Samsett mynd

Síðastliðnar vikur hefur Clare Sacco vakið ómælda athygli með myndskeiðum sínum á TikTok og þau vakið eftirtekt víða um lönd.

Sacco byrjaði að deila svokölluðum laupalista (e. bucket list) með netverjum í kjölfar þess að hún greindist með fjórða stigs krabbamein í mars á þessu ári, en Sacco greindist fyrst með brjóstakrabbamein árið 2019. 

Í viðtali sínu við tímaritið People segir hin 29 ára gamla Sacco að hún vilji meðal annars leysa Rubik-kubb, en það er vinsælt leikfang sem flestir erfiða við að leysa. „Þetta er erfiðara en það lítur út fyrir að vera,“ segir hún. 

„Þessi listi snýst um að lifa lífinu til fulls“

Litríki kubburinn er það fyrsta á „lífslistanum“ eins og hún kallar hann. „Þessi listi snýst um að lifa lífinu til fulls. Þetta er ekki listi yfir hluti sem ég ætla að áorka áður en tíminn er úti,“ segir Sacco. 

Ofarlega á listanum er brúðkaup, en unnusti hennar, sem Sacco hefur þekkt frá ungdómsárum sínum fór á skeljarnar í maí, tveimur mánuðum eftir að hún fékk að heyra að krabbameinið væri ólæknanlegt.

View this post on Instagram

A post shared by Clare Sacco (@clarexsacco)

Köfun í Kóralrifi og Harry Potter

Lífslisti Sacco hefur að geyma ógrynni af ævintýrum, en ásamt unnusta sínum ætlar hún að kafa í Kóralrifinu mikla í Ástralíu, keyra niður Route 66 í Bandaríkjunum og heimsækja Wizarding World of Harry Potter í Universal Studios í Orlando. 

„Mig langar til að skapa ógleymanlegar minningar,“ segir Sacco. „Læknar hafa ekki gefið mér tímalínu og ég hef ekki beðið um hana, ég ætla að nýta tímann.“

@clarexsacco Diagnosed with incurable cancer in my 20s 🎗️ raising awareness and living life to the fullest 💕 #stage4cancer #stage4needsmore #breastcancer ♬ Emotional - Bang Nono
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að vita ekkert er betra en að vita eitthvað sem ekki stenst. Hve er sinnar gæfu smiður og enginn hefur rétt til þess að ráðskast með þig.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Anna Margrét Sigurðardóttir
3
Eva Björg Ægisdóttir
4
Torill Thorup
5
Ragnheiður Gestsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að vita ekkert er betra en að vita eitthvað sem ekki stenst. Hve er sinnar gæfu smiður og enginn hefur rétt til þess að ráðskast með þig.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Anna Margrét Sigurðardóttir
3
Eva Björg Ægisdóttir
4
Torill Thorup
5
Ragnheiður Gestsdóttir