Fann ástina aftur í örmum fótboltakonu

Sophia Bush og Ashlyn Harris.
Sophia Bush og Ashlyn Harris. Samsett mynd

Leikkonan Sophia Bush er búin að finna ástina aftur. Bush er sögð vera að hitta fótboltakonuna Ashlyn Harris. Leikkonan hætti með eiginmanni sínum, fjárfestinum Grant Hughes, í ágúst eftir rúmlega eins árs hjónaband. Harris sótti um skilnað frá eiginkonu sinni í september. 

Bush, sem flestir kannast við úr One Tree Hill, er mikill fótboltaaðdáandi og hefur þekkt Harris í nokkur ár. Samband þeirra þróaðist í rómantískt samband í júní þegar þær tóku þátt í pallborðsumræðum á Cannes Lions auglýsingahátíðinni í Frakklandi. „Sambandið er nýtt af nálinni,“ segir heimildarmaður Page Six. „Þær eru pottþétt saman.“

Bush er tvískilin en leikkonan var áður gift meðleikara sínum úr One Tree Hill, Chad Michael Murray. Parið sótti um skilnað einungis nokkrum mánuðum eftir brúðkaupið. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup