Billie Eilish sýnir risastórt húðflúr

Söngkonan Billie Eilish fer ótroðnar slóðir í húðflúrum.
Söngkonan Billie Eilish fer ótroðnar slóðir í húðflúrum. Skjáskot/Instagram

Söngkonan Billie Eilish fékk sér feiknastórt húðflúr á bakið. Hún birti myndir af því á samfélagsmiðlum og voru skiptar skoðanir um ágæti þess.

Húðflúrið sem er svart á lit nær frá hálsi og niður eftir endilöngu bakinu.

Ekki er vitað hvað húðflúrið á að tákna en það líkist einna helst óhlutbundinni skreytilist. 

Virkir í athugasemdum létu ljós sitt skína og hver hafði sína túlkun á húðflúrinu. Einn sagði það minna á Stranger Things gátt á meðan aðrir sögðu þetta minna á barnakrass.

Þetta er ekki fyrsta húðflúr hinnar 21 árs söngkonu en hún er með fjölmörg önnur víðs vegar um líkamann en þetta er ef til vill fyrsta húðflúrið sem hefur vakið svona mikla undran.

Eilish er til dæmis með eftirnafnið sitt húðflúrað á bringuna, hún hefur aldrei sýnt það opinberlega og segist aldrei ætla að gera það.

Svo er hún með drekahúðflúr á lærinu og vængjaðar álfadísir á handarbaki.

Húðflúrið á bakinu er stórt og óvenjulegt. Þarna var nýbúið …
Húðflúrið á bakinu er stórt og óvenjulegt. Þarna var nýbúið að húðflúra bak söngkonunnar. Skjáskot/Instagram
Nýleg mynd af húðflúrinu.
Nýleg mynd af húðflúrinu. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir