Dekrað verður við konur og kvár í tilefni kvennaverkfallsins á þriðjudag á veitingastaðnum Önnu Jónu, en konur og kvár munu fá 21% afslátt af öllum réttum staðarins í samræmi við launamismun kynjanna.
Þá hefur eigandinn Haraldur Þorleifsson kallað til nokkra „vanhæfa þjóna“ til að standa vaktina til að fylla í störf kvennanna sem leggja niður störf þennan dag.
Til þjónustu reiðubúnir verða ekki óþekktari menn en grínararnir Ari Eldjárn og Jón Gnarr, tónlistarmennirnir Högni Egilsson, Unnsteinn Manuel, Sigurður Guðmundsson, Einar Örn, Sigtryggur Baldursson og Bragi Valdimar, leikarinn Gunnar Hansson og Haraldur sjálfur, eigandi staðarins.
Haraldur segir í tilkynningu frá veitingastaðnum að gestaþjónarnir muni reyna af fremsta megni að komast með tærnar þar sem kvenþjóðin hefur hælana alla daga í störfunum á veitingastaðnum.
Til að flækja málin ekki um of fyrir gestaþjónana verður einfaldur brönsmatseðill í boði yfir daginn og geta konur og kvár og stuðningsfólk gætt sér á heimabökuðu brauði, kjúklingi og vöfflum eða fengið sér egg og beikon.