Ragnheiður Jónsdóttir hlaut glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn í morgun. Verðlaunabók hennar, Blóðmjólk, kemur út í dag.
Tólf handrit voru send inn í keppnina og á endanum stóð eitt upp úr að öllu leyti, að því er segir í tilkynningu.
„Í Blóðmjólk fer höfundurinn ekki troðnar slóðir í ritun glæpasagna, allar meginpersónur bókarinnar eru konur og sagan gerist í heimi kvenna. Í umsögn dómnefndar segir m.a.: „Sjónarhornið flakkar á milli kvennanna, þannig að lesandinn kynnist persónunum frá ýmsum hliðum. Hann áttar sig þó fljótt á því að ekki er allt sem sýnist. Sögunni vindur hugvitsamlega fram; var framinn glæpur og ef svo er, hver er hinn seki og hvað átti sér stað?“,“ segir í tilkynningunni.
Ragnheiður Jónsdóttir er fædd 1989. Hún stundaði listnám í Gautaborg, hóf síðan nám í íslensku við Háskóla íslands og lauk meistaraprófi þaðan. Blóðmjólk er fyrsta skáldsaga hennar.
Að Svartfuglsverðlaununum standa glæpasagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson, ásamt útgefanda sínum, Veröld.
Þau eru veitt höfundi að undangenginni samkeppni þar sem nafnleyndar er gætt, en skilyrðið er að viðkomandi hafi ekki sent frá sér glæpasögu áður. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk hefðbundinna höfundarlauna samkvæmt rammasamningi Félags íslenskra bókaútgefenda og Rithöfundasambands Íslands. Einnig býðst þeim sem sigur ber úr býtum samningur við umboðsmanninn David H. Headley en tímaritið Bookseller útnefndi hann sem einn af 100 áhrifamestu mönnum breskrar bókaútgáfu.
Yrsa og Ragnar skipuðu dómnefndina ásamt Bjarna Þorsteinssyni, útgáfustjóra Veraldar. Fyrst til að hljóta verðlaunin var Eva Björg Ægisdóttir en bækur hennar koma núna út á um 20 tungumálum um allan heim