Fyrrverandi barnastjarna dæmd í fangelsi

Zachery Ty Bryan hefur ekki átt sjö dagana sæla.
Zachery Ty Bryan hefur ekki átt sjö dagana sæla. Samsett mynd

Bandaríski leikarinn Zachery Ty Bryan, sem gerði garðinn frægan með hlutverki sínu í þáttaröðinni Home Improvement á tíunda áratugnum, hefur verið dæmdur í sjö daga fangelsi fyrir heimilisofbeldi, áreitni og rán. Leikarinn var handtekinn nálægt heimili sínu á Laguna Beach í lok júlímánaðar. 

Bryan, 42 ára, kom fram fyrir rétti í Oregon á miðvikudag og játaði sök. Ásamt sjö daga fangelsisvist hlaut hann einnig 36 mánaða skilorðsbundinn dóm og verður að sæta áfengis- og fíkniefnameðferð. 

Leikarinn hefur áður komist í kast við lögin og var meðal annars handtekinn árið 2020 fyrir líkamsárás, en þá gerðist hann sekur um að hafa reynt að kyrkja konu.

Bryan er sjö barna faðir. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir