Meðvitundarlaus er viðbragðsaðilar komu á staðinn

Matthew Perry var meðvitundarlaus þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn.
Matthew Perry var meðvitundarlaus þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. AFP/Chris Delmas

Leikarinn Matthew Perry var meðvitundarlaus þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. Perry var úrskurðaður látinn á staðnum, en hann var í heitum potti er hann fannst. Þetta kemur fram í svari slökkviliðsins í Los Angeles í Bandaríkjunum til CNN.

Perry lést á heimili sínu laugardag, 54 ára að aldri.

„Ástand hans var metið um leið og viðbragðsaðilar komu á staðinn, í ljós kom að því miður var maðurinn látinn áður en viðbragðsaðilar komu á staðinn,“ segir í svarinu.

Embætti réttarlæknis í Los Angeles rannsakar nú andlát Perrys og það gerir lögregla einnig. 

Búið er að fresta úrskurði um dánarorsök þar til niðurstöður liggja fyrir. Lögregla hefur þegar greint frá því að hún telji ekki að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. 

Perry fór með hlutverk Chandlers Bing í þáttunum Friends. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eftir siglingu á lygnum sjó dregur allt í einu til tíðinda hjá þér í ástamálunum. Reyndu að eyða tíma úti í náttúrunni, lestu bók eða farðu í gönguferð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Anna Margrét Sigurðardóttir
3
Torill Thorup
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eftir siglingu á lygnum sjó dregur allt í einu til tíðinda hjá þér í ástamálunum. Reyndu að eyða tíma úti í náttúrunni, lestu bók eða farðu í gönguferð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Anna Margrét Sigurðardóttir
3
Torill Thorup
4
Eva Björg Ægisdóttir