Joey kveður Chandler

Matt LeBlanc kveður Matthew Perry í hjartnæmri færslu.
Matt LeBlanc kveður Matthew Perry í hjartnæmri færslu. HO

Matt LeBlanc, sem fór með hlutverk Joey Tribbiani í Friends, kvaddi mótleikara sinn úr þáttunum, Matthew Perry, í hjartnæmri færslu á Instagram í dag. Sagði hann það hafa verið heiður að fá að deila sviðinu með honum. 

Perry fannst látinn á heimili sínu í október. Hann fór með hlutverk Chandler Bing í Friends og léku þeir LeBlanc ófáar senurnar saman. 

„Það hryggir mig að kveðja þig. Allar þær stundir sem við áttum saman eru án efa með mínum uppáhaldsstundum í lífinu. Það var heiður að fá að deila sviðinu með þér og að fá að kalla þig vin minn. Ég mun alltaf brosa þegar ég hugsa um þig og mun aldrei gleyma þér. Aldrei,“ skrifar LeBlanc í færslu sinni. 

LeBlanc endar færsluna á léttu nótunum og segir: „Ætli þú fáir ekki að halda 20 dollurunum sem þú skuldar mér“.

View this post on Instagram

A post shared by Matt LeBlanc (@mleblanc)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eftir siglingu á lygnum sjó dregur allt í einu til tíðinda hjá þér í ástamálunum. Reyndu að eyða tíma úti í náttúrunni, lestu bók eða farðu í gönguferð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Anna Margrét Sigurðardóttir
3
Torill Thorup
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eftir siglingu á lygnum sjó dregur allt í einu til tíðinda hjá þér í ástamálunum. Reyndu að eyða tíma úti í náttúrunni, lestu bók eða farðu í gönguferð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Anna Margrét Sigurðardóttir
3
Torill Thorup
4
Eva Björg Ægisdóttir