Vekja athygli á „ógnvekjandi grimmd“

Nýja lagið er komið út.
Nýja lagið er komið út. Myndverk: James Merry

Björk og Rosalía hafa sameinað krafta sína og sent frá sér lagið „Oral“. Þetta er í fyrsta skipti sem þær vinna saman. Tónlistarkonurnar tvær stjórnuðu upptökunum ásamt Sega Bodega.

„Markmiðið með útgáfu lagsins er að vekja athygli á ógnvekjandi grimmd þegar kemur að sjókvíaeldi og þeim alvarlegu umhverfis- og vistfræðilegu afleiðingum sem sjókvíaeldi hefur,” segir í tilkynningu.

Lagið var samið á tímabilinu milli platnanna Homogenic (1997) og Vespertine (2001) með Björk en endaði með öðrum óútgefnum lögum þar sem keimur „Oral“ var ólíkur því efni sem endaði á plötunni.

Enduruppgötvaði lagið

Björk enduruppgötvaði lagið eftir að titilinn bar á góma þegar hún var á tónleikaferðalagi um Ástralíu í mars síðastliðnum. Í sama mánuði var birt skýrsla sem fjallaði um skaðleg áhrif á íslenskt vistkerfi vegna óljóss regluverks í kringum norskt sjókvíaeldi.

„Eftir að hafa fundið mikinn samhljóm með málefninu og sem ástríðufull baráttukona fyrir ýmis málefni í gegnum tíðina, fékk Björk Rosalíu til liðs við sig til að lífga lagið við og í kjölfarið vekja athygli á málstaðnum. Sjókvíaeldi var kynnt fyrir Íslendingum þegar norskir viðskiptamenn hófu að kaupa eldisstöðvar í íslenskum fjörðum. Vinnuaðferðir flýta fyrir vexti fiskanna og í mörgum tilvikum með þeim afleiðingum að genabreytingar eiga sér stað í erfðaefni laxanna. Í ofan á lag eru eldisstöðvarnar gróðrarstía fyrir ýmis sníkjudýr og sjúkdóma. Iðnaðurinn á Íslandi hefur tífaldast síðan 2014, upphafleg framleiðsla var undir 4000 tonnum en var komin upp í 45.000 tonn 2021, áætluð árs framleiðsla nú gæti verið allt upp að 106.500 tonnum,” segir í tilkynningunni.

„Á Íslandi má finna stærsta svæði ósnertrar náttúru í Evrópu. Úrgangurinn og mengunin sem fylgir sjókvíaeldi ógnar hafsvæðinu og getur skaðað vistkerfi þess til frambúðar. Skortur á reglukerfi og lítið eftirlit með iðnaðinum hefur líka haft þær afleiðingar að þúsundir laxa sleppa reglulega og synda upp í ár á hálendissvæðum Íslands og ögra þannig íslenska laxastofninum,” segir þar einnig.

Björk og Rosalia hafa ákveðið að gefa sjálfseignarstofnuninni AEGIS allan rétt þeirra til tekna af laginu „Oral“ til að berjast gegn sjókvíaeldi á Íslandi. Plötufyrirtæki þeirra hafa einnig samþykkt það.

„Allar tekjur munu ganga til greiðslu lögfræðikostnaðar mótmælenda, aðgerða til að stöðva uppbyggingu eldisstöðva sem skaða dýralíf, afskræma fiska, og skapa hættu á erfðablöndun eldislax við villta laxastofna og skaða þannig möguleika þeirra til að lifa af í náttúrunni. Tafarlausar aðgerðir skipta sköpum,” segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nýjar og óvenjulegar hugmyndir um leiðir til fjáröflunar vekja áhuga þinn í dag. Möguleikarnir eru óteljandi og það er synd að sitja með hendur í skauti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Ragnheiður Jónsdóttir
3
Unnur Lilja Aradóttir
4
Colleen Hoover
5
Snæbjörn Arngrímsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nýjar og óvenjulegar hugmyndir um leiðir til fjáröflunar vekja áhuga þinn í dag. Möguleikarnir eru óteljandi og það er synd að sitja með hendur í skauti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Ragnheiður Jónsdóttir
3
Unnur Lilja Aradóttir
4
Colleen Hoover
5
Snæbjörn Arngrímsson