Tónlistarveitan Spotify tilkynnti í dag um vinsælasta tónlistarfólk ársins og birti topp tíu lista yfir mest streymda tónlistarfólk 2023 ásamt mest streymdu lögum og plötum þessa viðburðarríka tónlistarárs. Hin árlega samantekt Spotify, Wrapped, sýnir að af þeim tíu tónlistarmönnum sem eru með hvað mest streymi á Íslandi eru þrír þeirra íslenskir. Átta af tíu mest streymdu lögum hér á landi eru einnig flutt af íslenskum tónlistarmönnum, en sjö þeirra tilheyra saman tónlistarmanninum,
Vögguvísur Hafdísar Huldar Þrastardóttur vöktu gífurlega lukku og er tónlistarkonan sú mest streymda á Spotify hér á landi. Útgáfa hennar af hinni sívinsælu vögguvísu, Dvel ég í draumahöll, er mest streymda lag ársins og plata hennar Vögguvísur, frá árinu 2012, er mest streymda plata ársins. Lög Hafdísar Huldar slógu því heldur betur í gegn hjá hlustendum á árinu en tónlistarkonan á sjö af tíu mest streymdu lögum ársins.
Lagið Skína eftir þá Patrik Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, og Loga Tómasson, sem gengur undir listamannsnafninu Luigi, var einnig vinsælt á árinu, en það situr í sjöunda sæti listans yfir mest streymdu lögin. Tónlistarmennirnir Bubbi Morthens og Friðrik Dór Jónsson taka sæti á topp tíu listanum yfir vinsælustu tónlistarmenn landsins. Bubbi situr í öðru sæti en Friðrik Dór í því áttunda.