„Jólakortsmyndin af þessari fjölskyldu verður líklega aldrei skemmtilegri en þessi,“ skrifar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í færslu sem ráðherrann birti á Instagram fyrr í dag.
Myndin var tekin í þrítugsafmælisferð Nínu Kristínar, systur Áslaugar Örnu, í október. Á henni má sjá fjölskylduna klædda í gervi ýmissa Disney-persóna, en sjálf hefur Áslaug brugðið sér í gervi skrímslisins Mike Wazowski úr teiknimyndinni vinsælu Monsters Inc.
„Sendum Disney jólakveðjur til ykkar allra,“ bætir Áslaug við, en færsluna í heild sinni má sjá hér að neðan.