Skáldsaga Auðar Övu Ólafsdóttur, DJ Bambi, er besta skáldsaga ársins að mati menningarblaðamannanna Árna Matthíassonar og Ragnheiðar Birgisdóttur.
„Þetta er frábær bók,“ segir Árni Matt um bókina í uppgjörsþætti þeirra Ragnheiðar í Dagmálum. DJ Bambi segir af trans konunni Logn sem dreymir um að vera grafin í „réttu hylki“.
Ragnheiður segir bókina yndislestur en þó fulla af dýpt.
Á blað komust einnig Armeló eftir Þórdísi Gísladóttur og Náttúrulögmálin eftir Eirík Örn Norðdahl.
Armeló segja þau „óvenjulega ferðasögu um óvenjulega söguhetju“ en Náttúrulögmálin kalla þau „vestfirskt töfraraunsæi“.
Árni og Ragnheiður gerðu upp bókaárið 2023 og völdu bækur sem þeim þótti standa upp úr. Þáttinn í heild má nálgast hér að neðan.