Tónlistarkonan Taylor Swift og NFL-stjarnan Travis Kelce hafa verið á allra vörum undanfarna mánuði, en þau eru sögð hafa haldið upp á jólin saman.
Orðrómur um samband Swift og Kelce fór fyrst á flug í september síðastliðnum, en þau opinberuðu svo loksins sambandið í október. Tónlistarkonan hefur verið dugleg að mæta á leiki og styðja Kelce í NFL-deildinni, en hann er leikmaður Kansas City Cheifs.
Heimildir Daily Mail herma að Swift hafi átt góðar stundir heima hjá Kelce á jólunum, en með þeim voru foreldrar Swift og faðir Kelce.
„Að sjá fjölskyldur þeirra saman á svona sérstökum degi var besta gjöfin fyrir Taylor. Hún hefur aldrei upplifað það áður sem gerði hátíðirnar þeim mun mikilvægari fyrir hana,“ sagði heimildamaður fréttamiðilsins.