Kennarastofan, nýir íslenskir þættir í Sjónvarpi Símans með Sveppa og Kötlu Margréti hófu göngu sína í síðustu viku við góðar undirtektir. Viðbrögð þjóðarinnar við íslensku efni geta verið misjöfn en að minnsta kosti ein kona getur ekki hætt að hlæja!
Mbl.is barst nýverið talskilaboð frá aðila sem var yfir meðallagi ánægður með þættina en skilaboðin má hlusta á og sjá hér að ofan. Það má teljast líklegt að Gunnar, sá sem fékk skilaboðin hafi einnig skemmt sér vel.
Kennarastofan fjallar um líf grunnskólastýru með áráttu- og þráhyggjuröskun, sem umturnast þegar hömlulaus tónlistarkennari mætir til starfa. Serían er rómantísk gamansaga og fjallar um ástir og örlög kennara.