Vill ekki að hver sem er mæti í jarðarförina

Leikkonan Shannen Doherty er með brjóstakrabbamein.
Leikkonan Shannen Doherty er með brjóstakrabbamein. AFP

Bandaríska leikkonan og hlaðvarpsstjarnan, Shannen Doherty, ræddi um eigin jarðarför við besta vin sinn í nýjasta hlaðvarpsþætti sínum, Let's Be Clear.

Doherty, sem er líklegast hve þekktust fyrir hlutverk sín í þáttaröðunum Beverly Hills 90210 og Charmed, hefur háð harða baráttu við brjóstakrabbamein frá árinu 2015 og greindi frá því árið 2021 að meinið væri komið á fjórða stig og einnig búið að dreifa sér. 

Í hlaðvarpsþættinum ræddi Doherty mjög opinskátt um jarðarför sína og sagði besta vini sínum, Chris Cortazzo, sem er einnig umsjónarmaður dánarbús leikkonunnar, að það væru miklar líkur á að margir myndu sækja jarðarförina í eigingjörnum tilgangi. 

„Ég vil ekki að fólk syrgi mig á almannafæri en hugsi síðan: „Loksins, tíkin er dauð.“

Aðspurð um hverjir væru á listanum þá sagðist Doherty ekki vilja nefna nöfn en gaf þó upp að listinn væri langur. Leikkonan vonast til þess að opinberun hennar verði til þess að einhverjir hugsi sig tvisvar um þegar þar að kemur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ráð frá einhverjum þér eldri geta komið þér að gagni í dag og orðið til þess að auka tekjumöguleika þína. Líttu málin raunsönnum augum og þá sést að flest er í lagi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ráð frá einhverjum þér eldri geta komið þér að gagni í dag og orðið til þess að auka tekjumöguleika þína. Líttu málin raunsönnum augum og þá sést að flest er í lagi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir