Ross og Rachel saman á ný

Best!
Best! Samsett mynd

Uppáhalds kærustupar flestallra úr sjónvarpsheimum sameinaðist á ný á dögunum. Tilefnið var auglýsing fyrir Ofurskálina, en þau Jennifer Aniston og David Schwimmer fara með aðalhlutverk í nýrri auglýsingu fyrir bandaríska fyrirtækið Uber Eats. 

Í auglýsingunni sést Aniston, 54 ára, taka við sendingu frá Uber Eats. Stuttu síðar kemur Schwimmer, 57 ára, himinlifandi að sjá vinkonu sína og faðmar hana að sér, eins og gengur og gerist þegar gamlir vinir hittast.

Aniston, heldur vandræðaleg á svip, segir án þess að hika: „Höfum við hist, gefðu mér vísbendingu? Schwimmer svarar hissa á svip: „Sko, við unnum saman í tíu ár.“ Og grínið heldur þannig áfram fram og til baka og því greinilegt að vinirnir hafa ekki tapað húmornum. 

Auglýsingin verður sýnd í auglýsingahléi Ofurskálarinnar hinn 11. febrúar næstkomandi. 

Schwimmer og Aniston fóru með hlutverk Ross Geller og Rachel Green í einum ástsælasta gamanþætti allra tíma, Vinum (e. Friends). Þættirnir gengu í tíu ár og voru sýndir frá 1994 til 2004. Ásamt Schwimmer og Aniston fóru þau Lisa Kudrow, Matt LeBlanc, Courtney Cox og Matthew Perry heitinn með aðalhlutverk. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir