Facebook-hópurinn Love Island Memes logaði eftir að birt var mynd af tvífara Love Island-stjörnunnar Anton Danyluk, en það er enginn annar en Glanni Glæpur úr Latabæ sem Stefán Karl Stefánsson lék.
Um þessar mundir er svokölluð All Stars-sería af Love Island í fullum gangi þar sem þátttakendur úr fyrri þáttaröðum gefa ástinni annað tækifæri. Þar á meðal er Danyluk sem sló fyrst í gegn þegar hann tók þátt í fimmtu þáttaröð raunveruleikaþáttanna árið 2019.
Á dögunum birtist færsla um Danyluk í Facebook-hóp sem tileinkaður er þáttunum, en alls eru rúmlega 255 þúsund meðlimir í hópnum. Í færslunni var birt samsett mynd af Danyluk og Glanna Glæp með yfirskriftinni: „Ég get ekki afséð þetta.“
Færslan vakti mikla athygli í hópnum og hefur þegar fengið yfir þúsund „likes“, 107 deilingar og 576 ummæli. Af ummælum að dæma virðast margir vera sammála því að Danyluk og Glanni Glæpur séu mjög líkir.