Magnús Kjartan Eyjólfsson, aðalsöngvari Stuðlabandsins, greindist nýverið með bráðahvítblæði. Þessu greinir Sigríður, unnusta og barnsmóðir Magnúsar, frá í færslu á Facebook.
Greiningin hafi að öllum líkindum átt sér stað á byrjunarstigi og fyrir það séu þau þakklát. Nú sé Magnús staddur á blóð- og krabbameinsdeild á Landspítalanum á Hringbraut, þar sem hann verður næsta mánuðinn í það minnsta.
„[...] Við erum með skýra sýn á það hvað markmiðið er, og það er að koma sterkari út úr þessu saman og senda þetta krabbamein beinustu leið til helvxxxx, og Maggi okkar mun standa uppi sem sigurvegarinn sem hann er!“, segir í færslunni.
Hvítblæði er tegund af illkynja kabbameini, sem felur í sér stjórnlausa fjölgun óþroskaðra hvítra blóðkorna.