Renner birtist óvænt á sviðinu 13 mánuðum eftir slys

Leikarinn Jeremy Renner birtist óvænt á People's Choice Awards og …
Leikarinn Jeremy Renner birtist óvænt á People's Choice Awards og afhenti verðlaun. AFP/Valerie Macon

Það ætlaði allt að verða vitlaust þegar Marvel-stjarnan Jeremy Renner mætti á svið til að afhenda fyrstu verðlaun kvöldsins á People's Choice Awards. Verðlaunahátíðin var haldin í Kaliforníu í gærdag.

Renner hefur lítið sést opinberlega frá því hann hlaut lífshættulega áverka í upphafi síðasta árs, en leikarinn lenti í slysi við snjómokstur. 

Þegar Renner, 53 ára, steig á svið Barker Hanger í Santa Monica braust út mikill fögnuður og ákaft lófaklapp, en tilnefndir og aðrir gestir gáfu leikaranum standandi lófaklapp og þar á meðal félagar hans úr Marvel-heiminum.

„Ég má til með að segja hversu gott það er að vera kominn aftur,“ sagði leikarinn í byrjun. „Síðastliðið ár hefur verið rosalegt ferðalag og er ég ótrúlega ánægður og þakklátur að vera hérna með ykkur. Þið, aðdáendurnir, eruð bestir.“

Renner afhenti verðlaun fyrir bestu frammistöðu í sjónvarpsþætti (e. TV performance of the Year) og var það söng- og leikkonan Billie Eilish sem hreppti verðlaunin fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttaröðinni Swarm. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup