Richard Lewis er látinn

Richard Lewis árið 2018.
Richard Lewis árið 2018. Ljósmynd/Wikipedia.org

Bandaríski leikarinn og grínistinn Richard Lewis er látinn 76 ára að aldri. 

Lewis er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Curb Your Enthusiasm og í kvikmyndinni Robin Hood: Men in Tights.

Í yfirlýsingu frá talsmanni Lewis til ABC News sagði að Lewis hefði látist úr hjartaáfalli á heimili sínu í Los Angeles í gær.

Grínistinn greindi frá því í fyrra að hann hefði greinst með Parkinsons-sjúkdóminn tveimur árum áður.

„Eiginkona hans, Joyce Lapinsky, þakkar öllum fyrir hlý skilaboð, vináttu og stuðning og óskar eftir næði á þessari stund,“ sagði í yfirlýsingunni. 

Lewis og eiginkona hans Joyce Lapinsky árið 2015.
Lewis og eiginkona hans Joyce Lapinsky árið 2015. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir