Haraldur Þorleifsson athafnamaður verður með útgáfutónleika á plötu sinni The Radio Won't Let Me Sleep á Nasa þann 4. maí.
Plötuna gefur Haraldur út undir listamannsnafninu Önnu Jónu Son og verða tónleikarnir á uppáhalds staðnum hans Nasa. „Ég held að það heiti núna Parliament Hótel,“ er haft eftir Haraldi í tilkynningu frá Senu.
Þar segir jafnframt að lögin á plötunni séu alls konar, mikið af ástarlögum, en líka lög um sorg, söknuð og uppgjöf.
Haraldi er greinilega margt til lista lagt því hann er stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, rekur veitingastaðinn Önnu Jónu, var áður yfirmaður hjá Twitter, auk þess sem hann stendur fyrir átakinu Römpum upp Ísland, sem hefur sem hefur sett upp yfir þúsund rampa hér á landi.