Fjórar af stærstu fréttaveitum heims vara fjölmiðla við að nota myndina af Katrínu, prinsessu af Wales, sem birt var á samfélagsmiðlum konungsfjölskyldunnar í morgun.
Telegraph hefur eftir tilkynningu frá AP að við nánari athugun virðist sem svo að átt hafi verið við myndina í myndvinnsluforriti. Þar er vísað til þess að eitthvað bogið virðist vera við vinstri handlegg Karlottu prinsessu, dóttur Katrínar og Vilhjálms Bretaprins.
Það eru Reuters, AP, Getty og AFP sem vara við notkun myndarinnar í fjölmiðlum.
Um er að ræða fyrstu opinberu myndina sem konungsfjölskyldan birtir af Katrínu síðan hún gekkst undir aðgerð á kviðarholi fyrir tæpum tveimur mánuðum. Birtist hún með mæðradagskveðju frá Katrínu þar sem hún þakkar fyrir kveðjur síðustu mánuði.
Vangaveltur hafa verið um heilsu prinsessunnar þar sem hún hefur ekki sést á opinberum vettvangi um nokkurt skeið.