Kensingtonhöll hefur birt fyrstu opinberu myndina af Katrínu, prinsessu af Wales, síðan hún gekkst undir aðgerð á kviðarholi fyrir tæpum tveimur mánuðum.
Myndin var tekin af Vilhjálmi prins fyrr í vikunni og á henni má sjá Katrínu prinsessu ásamt þremur börnum þeirra, Georg, Karlottu og Lúðvík.
Hin 42 ára prinsessa hefur verið að jafna sig eftir aðgerðina á heimili þeirra í Windsor, vestur af Lundúnum, frá því að hún yfirgaf sjúkrahúsið 29. janúar.
„Þakka ykkur fyrir vinalegar kveðjur og áframhaldandi stuðning síðustu tvo mánuði,“ segir í færslu á samfélagsmiðlinum X.
Thank you for your kind wishes and continued support over the last two months.
— The Prince and Princess of Wales (@KensingtonRoyal) March 10, 2024
Wishing everyone a Happy Mother's Day. C
📸 The Prince of Wales, 2024 pic.twitter.com/6DywGBpLLQ