Katrín prinsessa af Wales hefur gefið út afsökunarbeiðni, í kjölfar þess að nokkrar stærstu fréttaveitur heims drógu til baka mynd af henni og börnum hennar sem Kensingtonhöll gaf út í gærmorgun.
Reuters, AP, Getty og AFP afturkölluðu myndina úr kerfum sínum í gærkvöldi og vöruðu fjölmiðla við notkun myndarinnar. AP sagði ástæðuna vera að í ljós hefði komið að átt hefði verið við myndina.
Breska dagblaðið Telegraph hafði svo eftir talsmanni AP að sérstaklega væri horft til vinstri handleggs Karlottu prinsessu.
Í tilkynningu núna kveðst prinsessan stundum prófa breytingar á myndum, eins og margir áhugaljósmyndarar. Hún vilji biðjast afsökunar á ruglingi sem fjölskyldumynd gærdagsins olli.
„Ég vona að allir þeir sem fögnuðu hafi átt mjög ánægjulegan mæðradag,“ segir í kveðju prinsessunnar, þar sem kvittað er undir með upphafsstaf hennar.
Like many amateur photographers, I do occasionally experiment with editing. I wanted to express my apologies for any confusion the family photograph we shared yesterday caused. I hope everyone celebrating had a very happy Mother’s Day. C
— The Prince and Princess of Wales (@KensingtonRoyal) March 11, 2024
Um er að ræða fyrstu opinberu myndina sem konungsfjölskyldan birtir af Katrínu síðan hún gekkst undir aðgerð á kviðarholi fyrir tæpum tveimur mánuðum. Birtist hún með mæðradagskveðju frá Katrínu þar sem hún þakkar fyrir kveðjur síðustu mánuði.
Vangaveltur hafa verið um heilsu prinsessunnar þar sem hún hefur ekki sést á opinberum vettvangi um nokkurt skeið.
Fulltrúar bresku konungsfjölskyldunnar höfðu áður neitað að tjá sig eftir að fréttaveiturnar afturkölluðu myndina.
View this post on InstagramA post shared by The Prince and Princess of Wales (@princeandprincessofwales)