Hljómsveitin Kaelo gaf út nýtt lag í dag. Er það fyrsta lag sem sveitin gefur út í þrjú ár.
Lagið heitir Lonely Cowboy en myndbandið við lagið var einnig gefið út í dag. Það var tekið upp í Colosseum-hringleikahúsinu fornfræga í Róm á Ítalíu.
Á undanförnum árum hefur hljómsveitin Kaleo slegið rækilega í gegn um allan heim. Lagið þeirra, Way Down We Go af plötunni A/B, hefur fengið yfir milljarð spilana á streymisveitunni Spotify.
Kaleo fagnaði tíu ára afmæli sínu með tónleikum í Colosseum fyrr í þessum mánuði. Tónleikarnir voru teknir upp og kemur upptakan út í sumar.