Eru heitustu hjónin í Hollywood að skilja?

Hjónin á góðri stundu.
Hjónin á góðri stundu. AFP

Orðrómur um yfirvofandi skilnað poppstjörnunnar Justin Bieber og fyrirsætunnar Hailey Baldwin er með öllu ósannur að sögn náins vinar hjónanna. Sá segir þau vera „mjög, mjög hamingjusöm“. 

„Þau eru ekki að skilja. Þessi saga er bara tilbúningur,“ sagði innanbúðarmaður við bandaríska tímaritið People

Bieber, eitt helsta fóður slúðurblaðanna síðustu ár, kvæntist Baldwin í september 2018 eftir slitrótt og nokkuð dramatískt samband, en parið byrjaði saman tveimur árum áður og aðeins vikum eftir að Bieber hætti með leik- og söngkonunni Selenu Gomez.

Bieber og Baldwin gengu í hjónaband við hátíðlega en leynilega athöfn í ráðhúsi í New York. 

Þann 1. mars síðastliðinn fagnaði söngvarinn 30 ára afmæli sínu. Í tilefni dagsins birti Baldwin hjartnæma færslu á In­sta­gram til heiðurs eiginmanni sínum ásamt krúttlegum myndum af hjónakornunum í gegnum árin. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir