Simon Chong, listrænn stjórnandi bandaríska gamanþáttarins Bob's Burgers, er mikill aðdáandi íslenska tónlistarmannsins Daða Freys Péturssonar. Hann sýndi aðdáun sína í verki og bjó til skemmtilegt myndskeið af Daða Frey sem sýnir tónlistarmanninn dansa og syngja í eldhúsi hamborgarastaðarins. Í myndskeiðinu sést einnig í nokkra af helstu karakterum Bob's Burgers.
Chong birti myndskeiðið á Instagram-síðu sinni í gærdag og vakti það mikla lukku hjá fylgjendum hans sem og aðdáendum þáttarins, sem fór í loftið þann 9. janúar 2011.
Chong var meðal tónleikagesta á tónleikum Daða Freys í Los Angeles á dögunum og heillaðist að lögum og sviðsframkomu íslenska tónlistarmannsins. Eftir tónleikana settist Chong við teikniborðið og bjó til 300+ myndir og myndskeið af Daða Frey ásamt Belcher-fjölskyldunni.
Daði Freyr sá myndskeiðið og skrifaði athugasemd við færslu Chong og sagðist vera yfir sig ánægður með þennan skemmtilega og óvænta heiður, en þátturinn er í miklu uppáhaldi hjá Eurovision-faranum. Sjálfur birti Daði Freyr mynd á Facebook-síðu sinni þar sem hann þakkaði kærlega fyrir heiðurinn.