The Golden Bachelor-stjörnurnar Gerry Turner og Theresa Nist eru að skilja eftir þriggja mánaða hjónaband.
Fjölbreyttur hópur kvenna yfir fimmtugu keppti um ástir hins 71 árs gamla Turner í nýjustu útgáfu raunveruleikaseríunnar. Turner og Nist trúlofuðu sig í lokaþættinum, sem sýndur var í lok nóvember á síðasta ári.
„Þú ert sú sem ég get ómögulega lifað án,“ sagði Turner áður en hann fór niður á skeljarnar og bað hinnar sjötugu Nist ásamt því að afhenda henni lokarósina.
Parið gekk í hjónaband í beinni útsendingu örfáum vikum seinna.