Út er komin ný bók eftir breska rithöfundinn Salman Rushdie, titluð Knife. Í bókinni, sem ber undirtitilinn „Meditations After an Attempted Murder“ segir hann frá fólskulegri hnífaárás sem hann varð fyrir, fyrir tæpum tveimur árum síðan.
Rushdie var gestur í spjallþætti Stephen Colbert, The Late Show with Stephen Colbert, á dögunum og ræddi meðal annars um skrifin og hnífaárásina.
Rushdie sagði skrifin hafa verið mikilvægan hluta af bataferlinu en hann viðurkenndi að það hafi tekið hann þó nokkurn tíma að taka upp pennann á ný, enda enn að vinna úr eftirmálum árásarinnar.
Ungur maður veittist að Rushdie er hann var að ávarpa samkomu í Chautauqua í New York í Bandaríkjunum þann 12. ágúst 2022.
Rushdie, 76 ára, var stunginn margsinnis og hlaut varanlegan skaða af. Rithöfundurinn missti sjón á öðru auga og hreyfigetu annarrar handar.
Öryggi Rushdie hefur ítrekað verið ógnað allt frá því að bók hans Söngvar Satans kom út árið 1988.
Í kjölfarið fyrirskipaði þáverandi erkiklerkur Írans að Rushdie skyldi líflátinn. Árið 1998 lýsti ríkisstjórn Íran því yfir að hún ætlaði ekki að framfylgja dauðadómnum.