Tónlistarfólkið Bríet Íris Elfar og Birnir Sigurðarson tilkynntu útgáfu nýrrar plötu sem er væntanleg 31. maí næstkomandi. Platan heitir 1000 orð en Bríet og Birnir hafa þegar deilt hljóðbrotum úr lagi númer tvö á plötunni Lifa af og lagi númer átta sem heitir Gröf.
Bríet og Birnir hafa átt í nógu að snúast en Bríet kom fram á dögunum í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún hefur verið mjög virk í að smíða nýja tónlist en aðeins er liðið hálft ár síðan hún gaf út lagið Bang Bang (Live at the Lighthouse).
Birnir og kærasta hans Vaka Njálsdóttir eru að fóta sig í foreldrahlutverkinu í fyrsta skipti með dóttur sinni Gróu Birnisdóttur. Þrátt fyrir að vera nýbakaður faðir fer tónlistin sjaldan langt undan hjá Birni en síðast gaf han út smellinn Bakka ekki út með Aroni Can fyrir ári síðan.