Lögreglan á Spáni fann málverk að andvirði 753 milljónir króna eftir breska listamanninn Francis Bacon sem hafði verið stolið árið 2015.
Verkið er eitt af fimm portrettum af spænska bankamanninum Jose Capelo eftir Bacon sem var stolið á heimili Capelo í Madrid. Samanlagt virði portrettanna er 3,7 milljarðar króna.
Lögreglan hafði endurheimt þrjú af portrettunum árið 2017 og hefur handtekið sextán manns sem eru grunaðir um aðild að þjófnaðinum, þar með talið höfuðpaurinn. Leit stendur yfir að síðasta verkinu.
Francis Bacon er talinn einn af merkustu málurum Bretlands á síðustu öld og hafa verk eftir hann verið seld fyrir metfé á uppboði. Verkið hans „Three Studies of Lucian Freud“ seldist fyrir 17,5 milljarða króna á uppboði í New York 2013 og er eitt af dýrustu verkum allra tíma.