Söng- og leikkonan Jennifer Lopez var ekki sátt þegar blaðamaður spurði hana út í mögulegan skilnað hennar og leikarans Bens Afflecks á blaðamannafundi í Mexíkó-borg á miðvikudag.
Lopez var að kynna Netflix-myndina Atlas ásamt leikaranum Simu Liu.
„Er skilnaðurinn við Ben Affleck raunverulegur?“ spurði ónafngreindur blaðamaður og vildi fá að vita sannleikann.
Stjarnan var ekki til í að svara spurningunni. Hún hló kurteisilega á meðan mótleikari hennar Liu kom henni til varnar. „Allt í lagi, við erum ekki að þessu. Takk fyrir, við kunnum að meta þetta,“ sagði leikarinn. Lopez tók þá við sér og svaraði blaðamanninum fullum hálsi. „Þú veist betur,“ sagði hún.
Hér fyrir neðan má sjá viðbrögð Lopez við spurningunni.
#JenniferLopez es cuestionada por su divorico en su visita a México para el estreno de #Atlas y #SimuLiu la defiende con una gran respuesta. 👏#JLo #AtlasEnMX pic.twitter.com/r2VX3XsXwi
— Glamour Mex y Latam (@GlamourMex) May 23, 2024