Ian McKellen fluttur slasaður á sjúkrahús

Ian Mckellen er meðal annars þekktur fyrir hlutverk sín sem …
Ian Mckellen er meðal annars þekktur fyrir hlutverk sín sem Gandálfur í þríleik Hringadrottinssögu og sem Magneto í X-men-myndunum. Hann hefur einnig átt farsælan feril á sviði. Skjáskot/Instagram

Enski stórleikarinn Ian McKellen var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa dottið af sviði í Noël Coward-leikhúsinu í Lundúnum í kvöld. Guardian greinir frá.

Leikarinn, sem er 85 ára gamall, var í hlutverki sínu sem John Falstaff í bardagasenu í leikritinu Player Kings þegar slysið átti sér stað.  

Leikarinn kallaði kvalinn eftir aðstoð og kom strax starfsfólk leikhússins til aðstoðar.

Leiksýningunni var í kjölfarið aflýst og áhorfendum gert að yfirgefa leikhúsið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir