Núminjar og myndlist mætast

Þorgerður innan um gripi á sýningunni.
Þorgerður innan um gripi á sýningunni. mbl.is/Arnþór

„Sumarið 2014 bauð vinur minn mér að aðstoða við fornleifauppgröft í Mývatnssveit og mitt hlutverk var að skrá jarðfundna gripi. Úr stórum haug af fornminjum birtist óvænt lítill rauður plastbútur sem fornleifafræðingarnir ákváðu að halda. Þarna áttaði ég mig á því að fornminjar framtíðar eru ruslið okkar í gær, bókstaflega,“ segir Þorgerður Ólafsdóttir myndlistarkona, en núminjar og myndlist mætast á sýningu hennar, Brot úr framtíð, sem opnaði í Þjóðminjasafninu þann 8. júní á Listahátíð í Reykjavík. Sýningin tekur saman myndlistarverkefni og listrannsókn Þorgerðar þar sem hún veltir fyrir sér fyrirbærum tengdum mannöld og hugmyndum um menningar- og náttúruarf. Á sýningunni má sjá listaverk og ólíka fundna muni úr náttúrunni, sem eru samofnir sögu mannsins og áhrifa hans og ná langt út fyrir himinhvolf jarðarinnar.

„Þessi fyrrnefndi rauði óræði plastbútur fer að endingu til varðveislu á Þjóðminjasafni Íslands. Áhugaverða spurningin er ekki endilega hvað þessi litli plastbútur var, heldur hvað er hann í dag?“

Jarðfundnir plastgripir

„Ég fór að forvitnast um þetta hjá Þjóðminjasafninu, en það eru minjalög á Íslandi sem kveða á um að minjar séu ekki fornmunir nema þeir séu hundrað ára eða eldri. Engu að síður var byrjað að safna jarðfundnum plastgripum víðsvegar um landið. Fyrsti gripurinn til að berast inn í þennan óræða anga fannst 1987, lítil plastperla, fyrir 37 árum. Fornleifafræðingar eru að svo miklu leyti framtíðarfræðingar og einhver ávað að taka þennan grip með. Aðeins hafði verið lokið við skráningu tveggja gripa af þeim fjörutíu sem voru þá í safneign Þjóðminjasafnsins, fyrir vikið voru þeir ekki aðgengilegir inni á Sarpi. Ég bauðst til að ljósmyndaskrá hina 38 alla í staðinn fyrir að fá að taka eigin ljósmyndir sem ég setti saman í innsetningu og sýndi í Harbinger gallerí í janúar 2016. Mér fannst líka mjög áhugavert að það var, og er enn, ekki til skilgreint heiti á þessa gripi, en innan allra vísinda og fræða reynum við alltaf að flokka og setja stórar hugmyndir og erfið viðfangsefni inn í einhver kerfi. Þannig reynum við að ná utan um veröldina.“

Rusl á ferð í geimnum

Þorgerður segist hafa farið að kalla þessa gripi núminjar, og að það hafi orðið einskonar regnhlífarhugtak yfir óræða gripi sem ögra hugmyndum okkar um samtímaminjar og framtíðar arfleifð. „Á sýningunni Brot úr framtíð, eru líka plaststeinar sem hafa fengið heitið Plastiglomerate, en það eru steinar sem finnast í náttúrunni og verða til við samruna rusls og jarðefnis. Í þeim eru steindir, skeljasandur og rusl. Þetta eru óstýrilátir munir sem snúa öllu á hvolf. Ég hef líka verið að skoða sjórekið plast sem er í raun nútíma reki og deili þeim áhuga með Þóru Pétursdóttur fornleifafræðingi sem er annar af nánustu samstarfsaðilum mínum í þessu verkefni. Hún kallar þetta rekaefni og vísar þá ekki aðeins í sjórekið rusl sem er á reki um höf jarðarinnar, heldur líka það sem er á ferð í geimnum. Á sýningunni höfum við stillt þessum gripum upp, sem hafa fundist á Íslandi og Noregi, sem einskonar framtíðarsafni.“

Ofna teppið Fabúla

Sumarið 2021 fékk Þorgerður rannsóknarleyfi til að dvelja á Surtsey í þrjá daga þar sem hún skoðaði ummerki mannsins í náttúru og umhverfi Surtseyjar. „Þar safnaði ég allskonar plast,,drasli“ og gekk fram á steingerðan fótsporaslóða í móberginu. Ég fjalla um þessi fyrirbæri í bókinni minni Esseyju, sem kom út síðast liðið haust og tengjast sýningunni hér í Þjóðminjasafninu. Mér fannst vera aðkallandi fyrir safnið að ávarpa þennan anga safnsins og áhugaverðasta samhengið fyrir þessa sýningu. Í dag eru jarðfundnir plastgripir orðnir 170 talsins í safneign höfuðsafns okkar, þeir hafa fjórfaldast frá 2016.

Plastiglomerate eru steinar sem finnast í náttúrunni og verða til …
Plastiglomerate eru steinar sem finnast í náttúrunni og verða til við samruna rusls og jarðefnis

Sýningin í Bogasalnum er í raun eitt stórt verk. Á gólfinu er ofið teppi úr endurnýttu næloni sem sýnir jarðfundna plastgripi og kallast Fabúla. Sýningargestir ganga því á núminjum. Ég prentaði einnig út þrjátíu fermetra smásjármynd af ískjarna úr Grímsvötnum, sem sýnir ísalög frá 1950, en það tímatal er gegnumgangandi í sýningunni og er oft nefnt í tengslum við tímamörk mannaldar. Í gegnum þessar ljósmyndir sáust fyrst ummerki um míkróplast í jöklum. Ég gerði líka hólagram af jarðfundinni golfkúlu sem er varðveitt á Þjóðminjasafninu og hún snýst og vakir yfir sýningunni eins og tunglið.

,,Ég hef verið að vinna að þessari sýningu í tæp tvö ár í frábæru samstarfi við Garðar Eyjólfsson hönnuð,“ segir Þorgerður sem tekur þátt í þverfaglegu rannsóknarverkefni sem heitir Relics of Nature, og er hýst við háskólann við Osló. „Sú sem leiðir það verkefni er fyrrnefnd Þóra Pétursdóttir fornleifafræðingur, en hún er með þessar risastóru byltingarkenndu hugmyndir minjar og arfleifð sem kollvarpa öllu.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að standa á rétti þínum í dag en gæta þess um leið að gera ekki meira úr hlutunum en nauðsyn krefur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
3
Torill Thorup
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að standa á rétti þínum í dag en gæta þess um leið að gera ekki meira úr hlutunum en nauðsyn krefur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
3
Torill Thorup
4
Birgitta H. Halldórsdóttir