Í tilefni af þjóðhátíðardegi Grænlands birtu dönsku konungshjónin myndir af sér á ferðalagi um landið má þar sjá drottninguna klædda úlpu frá 66° Norður.
Myndin er hluti af Instagram-færslu sem birt er í tilefni dagsins. Þar segjast konungshjónin eiga margar góðar minningar úr Grænlandsferðum sínum og hlakka til næstu heimsóknar að viku liðinni.
„Þjóðhátíðardagur Grænlands er í dag. Af því tilefni sendum við okkar hlýjustu kveðjur til grænlenska fólksins.
Við eigum bæði ógleymanlegar minningar frá Grænlandi og við hlökkum til að heimsækja þetta fallega land og gestrisna fólkið að viku liðinni,“ segir í færslunni.