Leikarinn Tamayo Perry, sem lék meðal annars í kvikmyndaseríunni Pirates of the Caribbean, lést eftir að hákarl réðst á hann á brimbretti á Hawaii.
Perry, sem var 49 ára gamli og var einnig björgunarsveitarmaður, lést síðdegis á sunnudag að sögn neyðarþjónustu Hononlulu. Hann varð fyrir árás hákarlsins nálægt Goat Island síðdegis á sunnudag
Perry lék í nokkrum myndum eins og í Lost, Hawaii Five-0, Blue Crush og Charlie's Angels 2 og þá kom hann fram í Coca-Cola auglýsingu.
„Tamayo Perry var björgunarmaður elskaður af öllum. Hann var faglegur brimbrettakappi sem var þekktur út um allan heim,“ sagði Kurt Lager, starfandi yfirmaður sjávaröryggismála, í yfirlýsingu.