Harry prins hefur verið sakaður um að eyða mikilvægum gögnum og samskiptum sem voru möguleg sönnunargögn í lögsókn hans gegn breskum fjölmiðlum. Harry er gert að útskýra það hvernig og afhverju þeim hafi verið eytt.
Anthony Hudson, lögmaður The Sun og News Group, sagði í réttarhöldunum að prinsinn hafi eytt uppköstum af bók sinni Spare sem og skilaboðum við þann sem skrásetti bókina J.R. Moehringer.
Samkvæmt umfjöllun The Telegraph þá á dómarinn einnig áhyggjur. „allt bendir til þess að stór fjöldi gagna og skilaboða hefur verið eytt á milli hertogans og rithöfundarins og tengjast þessu máli. Þeim var eytt einhvern tímann á árunum 2021 til 2023, löngu eftir að málinu var höfðað.“