Eiginkonan tjáir sig í fyrsta sinn eftir skilnaðinn

Charles Spencer og Karen Spencer meðan allt lék í lyndi.
Charles Spencer og Karen Spencer meðan allt lék í lyndi. GARETH FULLER

Karen Gordon, fyrrverandi eiginkona Charles Spencer, tjáði sig í fyrsta sinn um skilnaðinn eftir að hann var tilkynntur. Þetta gerði hún á samfélagsmiðlinum Instagram og sagðist þakklát fyrir allan hlýhug.

„Ég vildi bara segja að ég er djúpt snortin yfir öll hjartnæmu skilaboðunum sem ég hef fengið. Mínar innilegustu þakkir. Þetta hefur skipt mig miklu máli. Ég er bara að vinna úr öllu í augnablikinu og mun snúa aftur til ykkar von bráðar,“ segir Gordon í færslu sinni.

Þetta hefur verið erfitt sumar fyrir Gordon en faðir hennar lést í byrjun júní eftir að hafa þjáðst af Alsheimers sjúkdóminum.

Gordon er 52 ára og giftist Spencer árið 2011 eftir stutt kynni en þau kynntustu á blindu stefnumóti í Los Angeles ári fyrr. Þá giftust þau fjórum mánuðum eftir að Spencer bað hennar.

Gordon átti tvö börn frá fyrra sambandi en árið 2012 eignuðust hún og Spencer dótturina Lady Charlotte Diana Spencer. 

Sjálfur hefur Spencer sagst ætla að helga sig börnunum á þessum erfiðu tímum. 

„Þetta er gríðarlega sorg­legt,“ sagði hann í sam­tali við Daily Mail. „Ég vil aðeins helga mig börn­um og barna­börn­um mín­um og ég óska Kar­eni alls hins hins besta í framtíðinni.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Tíminn er dýrmætur og þú hefur engan tíma til þess að sökkva þér niður í eigin hugsanir. Staldraðu við taktu mark á þeirri rödd sem segir þér að rækta líkama og sál.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
3
Torill Thorup
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Tíminn er dýrmætur og þú hefur engan tíma til þess að sökkva þér niður í eigin hugsanir. Staldraðu við taktu mark á þeirri rödd sem segir þér að rækta líkama og sál.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
3
Torill Thorup
4
Birgitta H. Halldórsdóttir