Erfiðast að skrifa um andlát dótturinnar

Mark Morton man tímana tvenna í málminum.
Mark Morton man tímana tvenna í málminum. AFP/Ethan Miller

„Það er ekki vegna þess að ég sá þessa lífsreynslu í nýju ljósi. Ég átti einfaldlega í erfiðleikum með að gera þessu skil og finna réttu orðin,“ sagði Mark Morton, gítarleikari málmbandsins Lamb of God, á kynningu vegna nýútkominna endurminninga sinna, Desolation: A Heavy Metal Memoir, en þarna var hann að tala um dauða eins dags gamallar dóttur sinnar árið 2009 en banamein hennar var sýking sem hún varð fyrir í fæðingunni.

Auk þess að fara yfir tónlistarferilinn snertir Morton á erfiðum málum eins og fíkn og bataferlinu sem henni fylgdi en hann segir þó ekkert hafa komist nálægt því að vera eins erfitt að skrifa um og andlát dótturinnar, Madalyn Grace Morton. Áður hefur Morton ávarpað missinn í laginu Embers, sem var á plötunni VII: Sturm und Drang frá 2015, og í ritgerð sem Noisey birti.

Morton kveðst hafa verið afar illa stemmdur dagana sem hann var að skrifa um andlátið. „Ég lét bara vaða enda ekki gefinn fyrir að fela hluti. Maður gleymir aldrei svona löguðu. Á móti kemur að ég vildi heldur ekki velta mér upp úr þessu; bókin átti ekki að fjalla um þetta en ég get samt ekki sagt sögu mína án þess að nefna það. Á endanum snerist málið því um að finna rétta jafnvægið, það er að sýna þessu tilhlýðilega virðingu án þess að mjólka það. Frásögnin varð að vera einlæg og ég held að það hafi tekist.“

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í sterkum tengslum við tilfinningar þínar í dag og því er hætt við að þú segir eitthvað sem þú átt eftir að iðrast síðar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í sterkum tengslum við tilfinningar þínar í dag og því er hætt við að þú segir eitthvað sem þú átt eftir að iðrast síðar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup