Tónlistarkonan Firerose segir að Billy Ray Cyrus hafi verið erfiður og haft strangar reglur á meðan á hjónabandinu stóð.
Tónlistarmaðurinn Billy Ray Cyrus er einna þekktastur fyrir að vera faðir Miley Cyrus auk þess sem hann átti smellinn Achy Breaky Heart. Hann var giftur Firerose í sjö mánuði og ganga þau nú í gegnum erfiðan skilnað þar sem þau bæði saka hvort annað um einhvers konar ofbeldi.
Í viðtali við Page Six segir Firerose að Cyrus hafi viðhaft kerfisbundna einangrun þannig að hún átti erfitt með að finna hugrekki til þess að fara úr sambandinu.
„Hann var með mjög strangar reglur. Ég átti ekki bíl. Ég mátti bara fara til kírópraktors og einu sinni í mánuði mátti ég láta laga neglurnar mínar,“ sagði Firerose.
Þá máttu ættingjar hennar ekki heimsækja þau á býlið þeirra sem er nálægt Nashville. Hún segist hafa verið einangruð frá öllum í lífi sínu ef frá er talinn vímuefnaráðgjafinn hennar.
„Ef ég þurfti að senda skilaboð þá átti ég að lesa það upphátt fyrir hann. Sama átti við um tölvupósta.“
„Hann átti það til að taka ofsaköst og öskra á mig hástöfum. Ég varð skelfingu lostin. Þetta var ólógískt og ógnvekjandi. Eina stundina kallaði hann mig heimska hóru og þá næstu var ég ástin í lífi hans.“
Cyrus átti það einnig til að hætta að tala við hana dögum saman. „Ég dró mig í hlé. Ég var hrædd að tala.“ Þá er Firerose hrædd um að hann muni nota það gegn henni í skilnaðarferlinu það erfiða tímabil sem hún átti áður en hún varð edrú.
„Ég held að hann muni nota allt gegn mér. Hann er vondur maður.“