Óhætt er að fullyrða að Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, sé margt til lista lagt en hann segir frá því á Facebook-síðu sinni í dag að ræktun hans á kirsuberjum hafi skilað góðri uppskeru þetta árið.
Hann segist hafa haft tréð úti í garði fram í mars og tekið það þá inn í gróðurhúsið með þessum líka góða árangri eins og myndin sýnir sem fylgir færslu hans á Facebook.
Bjarni hlýtur mikið lof fyrir af umsögnum undir færslunni hans að dæma. Svo nú er bara að setja á sig hanskana og reyna við kirsuberjaræktun.