Þó svo að tónlistarmennirnir Patrik Atlason og Herbert Guðmundsson verða ekki á meðal knapa á Landsmóti Hestamanna, munu þeir þó leiða saman hesta sína í nýju lagi sem kemur út núna á föstudaginn 5. júlí.
Lagið er í anda tónlistar níunda áratugs síðustu aldar og ber nafnið „Annan hring“ og inniheldur að þeirra sögn tilvísun í lag Herberts, „Svaraðu“.
Það var að lokinni skemmtun sem þeir báðir höfðu komið fram á, að þeir ákváðu að gefa út lag saman. Fengu þeir til liðs við sig pródúsentinn Bjarka Ómarsson, þekktur sem Bomarz, og samdi hann lagið ásamt Patrik.