Hætt í hlutverki hjónabandsráðgjafans

Jennifer Garner t.h. hefur fjarlægt sig úr samtalinu.
Jennifer Garner t.h. hefur fjarlægt sig úr samtalinu. Samsett mynd

Jennifer Garner, fyrrum eiginkona Ben Afflecks, er sögð vera búin að fá nóg af því að miðla málum á milli Afflecks og Jennifer Lopez. Hún hefur ákveðið að stíga til hliðar og hætta að blanda sér í leikritið sem þetta er orðið.

Hjónabandskrísa Afflecks og Lopez er sögð hafa ýft upp erfiðar minningar frá eigin hjónabandi. Fjölmiðlar höfðu áður greint frá því hvernig hún væri að reyna að styðja við Lopez og Affleck og reyna að fá þau til þess að sættast. Nú vill hún fjarlægja sig alveg úr samtalinu.

„Hún komst loks á þann stað að leyfa þeim að sjá um þetta sjálf,“ sagði vinur Garner í samtali við DailyMail.com.

„Þetta var orðið of sársaukafullt fyrir hana að rifja upp eigið sambandsslit við Affleck. Henni þykir vænt um þau bæði en vill ekki dragast í þetta.“

Garner á að hafa upplifað í sínu hjónabandi að hún væri eftirbátur Lopez. Jafnvel þótt þau væru löngu hætt saman þegar þau fóru að rugla saman reitum. Hún var hissa hversu opinber hann var með samband sitt og Lopez því hann hefur aldrei kært sig um að vera í sviðsljósinu.

„Jennifer opnaði heimili sitt fyrir Lopez því hún hefur komist yfir þetta og haldið áfram með líf sitt. Henni þykir vænt um Lopez og börnin og hvernig þetta mun allt hafa áhrif á þau. En nú er hún hætt að leika hlutverk hjónabandsráðgjafans.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er allt svo laust í reipunum hjá þér. Þú hefur látið margt reka á reiðanum en nú verður ekki hjá því komist að taka málin föstum tökum. Leitaðu hjálpar ef með þarf.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er allt svo laust í reipunum hjá þér. Þú hefur látið margt reka á reiðanum en nú verður ekki hjá því komist að taka málin föstum tökum. Leitaðu hjálpar ef með þarf.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton