Hefur fengið sig fullsadda af leikurum

Emma Roberts ætlar ekki að falla fyrir leikurum aftur.
Emma Roberts ætlar ekki að falla fyrir leikurum aftur. mbl.is/AFP

Leikkonan Emma Roberts er komin með nýjan kærasta. Nýi maðurinn í lífi Roberts er tengdur inn í skemmtanaiðnaðinn en er ekki leikari enda stjarnan hætt að slá sér upp með leikurum. 

Roberts segir í viðtali við tímaritið Flaunt að einn daginn hafi hún áttað sig á því að leikarar væru ekki málið. „Ég held að það sé erfitt fyrir tvo leikara að vera saman. Ég er að reyna að sjá hvort það hafi verið gert með góðum árangri. Einnig hafa leikararnir sem ég hef verið með gengið langt í að setja sig í spor persóna og það getur verið mjög erfitt að vera í slíku sambandi,“ segir Roberts og tekur fram að persónur leikaranna hafi verið erfiðar. 

Roberts hefur meðal annars verið í sambandi með American Horror Story-leikaranum Evan Peters. Hún var einnig með leikaranum Garrett Hedlund en Roberts og Hedlund eiga saman hinn þriggja ára gamla Rhodes. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið hrókur alls fagnaðar að undanförnu og ættir að gefa sjálfum þér frí frá félagslífinu. Gefðu þér tíma til að slaka á.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið hrókur alls fagnaðar að undanförnu og ættir að gefa sjálfum þér frí frá félagslífinu. Gefðu þér tíma til að slaka á.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup