Julia Roberts og Danny Moder gift í 22 ár

Leikkonan Julia Roberts og kvikmyndagerðarmaðurinn Danny Moder fagna ástinni.
Leikkonan Julia Roberts og kvikmyndagerðarmaðurinn Danny Moder fagna ástinni. Samsett mynd

Leikkona Julia Roberts fagnar ástinni en hún og eiginmaður hennar, Danny Moder kvikmyndagerðarmaður, giftu sig fyrir 22 árum þann 4. júlí 2002. 

Parið fagnaði á samfélagsmiðlinum Instagram með mynd af þeim hjónum fyrir 22 árum en þar eru þau yfir sig ástfangin í þéttum faðmlögum kyssast rembingskossi.  

Ástin kviknaði við tökur á myndinni The Mexican og þau giftu sig í laumi tveimur árum seinna. Síðan þá hafa þau eignast saman tvíburana Phinneas og Hazel og soninn Henry. 

Leikkonan segir að sinn heitelskaði hafi alltaf leitt fjölskylduna áfram á yndislegan hátt og að hann sýndi henni snemma hversu tilfinningaríkt og fallegt lífið getur verið. 

People 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu það ekki fara í skapið á þér þótt athygli annarra beinist að þér. Þú færð hugboð sem þú ættir að fylgja eftir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu það ekki fara í skapið á þér þótt athygli annarra beinist að þér. Þú færð hugboð sem þú ættir að fylgja eftir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton