Kántrí-goðsögnin Willie Nelson sneri aftur á svið í fyrradag eftir að hafa glímt við veikindi.
Willie Nelson afboðaði sig á nokkra tónleika síðustu tvær vikur vegna veikinda, sem hafa ekki verið nánar tilgreind.
Á fimmtudag steig hinn 91 árs gamli söngvari hins vegar á stokk á árlegum tónleikum tileinkuðum þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna.
Hann deildi færslu á Instagram þar sem mátti sjá hann ganga út á svið með syni sínum, Lukas Nelson.